You are using an outdated browser. Please upgrade your browser to improve your experience.
Ökuvísir

Nýjung á Íslandi

Nýjung á Íslandi

Ökuvísir

by Vátryggingafélag Íslands hf.
Ökuvísir
Ökuvísir

What is it about?

Nýjung á Íslandi

Ökuvísir

App Details

Version
1.427
Rating
(3)
Size
93Mb
Genre
Finance
Last updated
March 13, 2024
Release date
March 2, 2021
More info

App Store Description

Nýjung á Íslandi

Ökuvísir er byltingarkennd nýjung hér á landi, en slíkur vísir er vel þekktur erlendis. Reynslan þar sýnir að tjónum fækkar allt að 20% hjá þeim sem nota slíka tækni. Í samvinnu við viðskiptavini okkar ætlum við að breyta umferðarmenningunni á Íslandi og fækka slysum.

Ökuvísir er ný leið í tryggingum þar sem verðlaunað er fyrir öruggan akstur og þannig minnkum við líkur á slysum. Ökuvísir veitir þér endurgjöf á aksturinn í gegnum app. Hann byggir á nýjustu tækni sem nýtir upplýsingar úr snjallsímanum þínum varðandi hraða, hröðun, staðsetningu og stefnu bílsins. Ökuvísir gefur akstrinum einkunn.

Samstarfsaðili okkar í Bandaríkjunum, Cambridge Mobile Telematics, notar gögnin til þess að gefa þér svo uppbyggilega endurgjöf á aksturinn.

Einkunnin byggir á eftirfarandi þáttum: (1-5 stjörnur):
• Hraða - Hvort þú keyrir yfir hámarkshraða og hversu lengi.
• Hröðun - Hversu hratt þú eykur hraðann.
• Hemlun - Hvort þú bremsar harkalega.
• Beygjur - Hvort þú keyrir of hratt í beygjum.
• Símanotkun - Hvort þú notir farsíma án handfrjáls búnaðar.

Aksturseinkunnin ásamt því hversu mikið þú keyrir (eknir kílómetrar) ákvarðar svo hvað bú borgar fyrir tryggingarnar í hverjum mánuði. Upphæðin getur því breyst milli mánaða. Aldur þinn, búseta, bíltegund eða skóstærð skiptir ekki máli. Bara hvernig þú ekur og hversu mikið.

Þú getur prófað Ökuvísi í allt að 14 daga áður en þú ákveður hvort þú vilji kaupa trygginguna. Þegar gengið hefur verið frá kaupum á tryggingunni þá sendum við þér lítinn kubb. Til þess að virkja kubbinn þarft þú að festa hann í framrúðuna á bílnum og tengja hann við snjallsímann þinn.

Kubburinn og snjallsíminn vinna svo saman og gefa enn betri mælingu á akstrinum. Kubburinn tengist símanum í gegnum Bluetooth. Kubburinn mælir hröðun, stefnu og hraða en ekki staðsetningu. Með því að hafa kubbinn í bílnum aukast gæði mælinganna og akstureinkunnin verður nákvæmari.

Við mælum með að prófa Ökuvísi, það kostar ekkert að prófa appið til þess að sjá hver þín aksturseinkunn er og sjá hvað þú munt borga í tryggingar.

Disclaimer:
AppAdvice does not own this application and only provides images and links contained in the iTunes Search API, to help our users find the best apps to download. If you are the developer of this app and would like your information removed, please send a request to takedown@appadvice.com and your information will be removed.