LATEST APPSGONEFREE Follow us on twitter
GearAdvice AppAdvice/TV NowGaming WatchAware

Dýr í hættu er gagnvirkt námsefni í tölfræði fyrir börn á aldrinum 9-12 ára þar sem barnið fer í hlutverk aðstoðarmanns vísindastofnunar sem vinnur við að rannsaka og skrásetja líf og umhverfi dýra í útrýmingahættu

Heimurinn okkar - Dýr í hættu

by Gebo Kano ehf.

What is it about?

Dýr í hættu er gagnvirkt námsefni í tölfræði fyrir börn á aldrinum 9-12 ára þar sem barnið fer í hlutverk aðstoðarmanns vísindastofnunar sem vinnur við að rannsaka og skrásetja líf og umhverfi dýra í útrýmingahættu.

App Details

Version
1.04
Rating
(1)
Size
143Mb
Genre
Education Family
Last updated
February 10, 2020
Release date
December 7, 2015
More info

App Screenshots

App Store Description

Dýr í hættu er gagnvirkt námsefni í tölfræði fyrir börn á aldrinum 9-12 ára þar sem barnið fer í hlutverk aðstoðarmanns vísindastofnunar sem vinnur við að rannsaka og skrásetja líf og umhverfi dýra í útrýmingahættu.

Forritið er byggt upp á raunhæfum verkefnum í tölfræði og nýtist best sem viðbótarefni við hefðbundna tölfræðikennslu. Þema forritsins er dýr í útrýmingarhættu og það er fullt af upplýsingum um dýr og umhverfismál. Það hentar því vel í þemavinnu um umhverfismál eða dýrafræði, eða sem afþreying fyrir krakka sem hafa áhuga á dýrum.

UPPBYGGING

Efninu er skipt í níu kafla eða borð. Hver kafli fjallar um ákveðið dýr eða annað efni sem tengist þemanu. Í hverjum kafla er einnig unnið með afmörkuð tölfræðihugtök. Í kaflanum Ísbirnir er t.d. unnið með tíðnitöflur, tíðni og tíðasta gildi en í köflunum Leðurskjaldbökur og Nashyrningar er unnið með súlurit.

Kaflarnir eru eftirfarandi: Ísbirnir, Leðurskjaldbökur, Pöndur, Nashyrningar, Górillur, Tígrisdýr, Staða tegunda, Náttúra í hættu og Veiðiþjófar.

Farið er í eftirfarandi tölfræðileg hugtök: tíðnitöflur, tíðni, tíðasta gildi, súlurit, hæsta gildi, lægsta gildi, tíðasta gildi, meðaltal, miðgildi, línurit, skífurit,

Í upphafi hvers kafla fær notandinn upplýsingar um það dýr eða efni sem kaflinn fjallar um. Þegar kynningunni er lokið á notandinn að leysa tölfræðileg verkefni um efni kaflans. Í verkefnunum þarf stundum að svara spurningum upp úr gögnum og tilbúnum ritum eða búa til rit úr gögnum. Sem dæmi má nefna að í pöndukaflanum á meðal annars að finna út hvað einn pönduhópur borðar mikinn bambus á dag að meðaltali og í nashyrningakaflanum á að búa til súlurit yfir hornastærð nokkurra nashyrninga.

Milli verkefna í hverjum kafla birtast áhugaverðar upplýsingar um viðfangsefnið.

Þegar kafla er lokið fær notandinn viðurkenningu í formi upplýsingaspjalds um viðeigandi dýr. Upplýsingaspjaldið birtist í dýrabókinni sem má opna á forsíðu forritsins.

Inn í forritinu er að finna ítarlega hjálp, bæði til að leiðbeina við notkun á forritinu og til að útskýra þau tölfræðilegu hugtök sem unnið er með.

***
Vissir þú að á síðustu 500 árum hafa um það bil 800 dýrategundir dáið út?
***

Disclaimer:
AppAdvice does not own this application and only provides images and links contained in the iTunes Search API, to help our users find the best apps to download. If you are the developer of this app and would like your information removed, please send a request to takedown@appadvice.com and your information will be removed.