You are using an outdated browser. Please upgrade your browser to improve your experience.
Stjörnuskífan

Stjörnuskífan er sérhönnuð og myndskreytt rafbók, eða leikjabók (gamebook), þar sem skáldskapur blandast við þrautir og fróðleik

Stjörnuskífan er sérhönnuð og myndskreytt rafbók, eða leikjabók (gamebook), þar sem skáldskapur blandast við þrautir og fróðleik

Stjörnuskífan

by Gebo Kano ehf.
Stjörnuskífan
Stjörnuskífan
Stjörnuskífan

What is it about?

Stjörnuskífan er sérhönnuð og myndskreytt rafbók, eða leikjabók (gamebook), þar sem skáldskapur blandast við þrautir og fróðleik. Leikjabókin er í senn ætluð almenningi og sem viðbótarnámsefni í skólum.

Stjörnuskífan

App Details

Version
2.3
Rating
(1)
Size
213Mb
Genre
Books Education
Last updated
November 23, 2021
Release date
February 20, 2018
More info

App Screenshots

Stjörnuskífan screenshot-0
Stjörnuskífan screenshot-1
Stjörnuskífan screenshot-2
Stjörnuskífan screenshot-3
Stjörnuskífan screenshot-4

App Store Description

Stjörnuskífan er sérhönnuð og myndskreytt rafbók, eða leikjabók (gamebook), þar sem skáldskapur blandast við þrautir og fróðleik. Leikjabókin er í senn ætluð almenningi og sem viðbótarnámsefni í skólum.

Fyrstu þrír kaflar Stjörnuskífunnar eru fríir en hægt er að kaupa leikjabókina í heild. Hún inniheldur samtals 14 kafla og leiki auk aragrúa af fróðleiksmolum.

Sagan fjallar um tvo unglinga í samtímanum, hinn íslenska Gunnar og hina íröksku Leylu, ævintýri þeirra og tímaflakk. Þau kynnast í skóla fyrir erlenda nemendur í Teheran í Íran eftir að hafa verið bæði rekin úr kennslustund. Í kjallara skólans finna þau skrítna klukku sem þeim tekst að gera við og hefjast þá svaðilfarirnar. Þau flakka til ársins 1206 þar sem þau hitta uppfinningamanninn Al-Jazari. Hann biður þau um hjálp við að ljúka meistaraverki sínu með því að safna hugmyndum forvera hans í forláta stjörnuskífu, sem er tímavél. Gunnar og Leyla flakka meðal annars til Húss viskunnar í Bagdad, til fjallshlíðar á Spáni (Al-Andalús) þar sem Abbas ibn Firnas reynir að fljúga fyrstur manna, til Aleppo þar sem þau hitta stjörnufræðikonuna Mariam al-Ijliya, þau lenda í klónum á illskeyttum djinn og margt fleira.

Í hverjum kafla er þraut sem tengist sögunni. Í raun eru það alls fjórtán litlir tölvuleikir. Auk þess inniheldur Stjörnuskífan mikinn fróðleik sem hægt er að veiða úr textanum með því að smella á merkt orð.

Í sögunni renna saman ævintýri og saga vísindanna. Margt fólk sem aðalpersónurnar hitta og margir staðir sem þær heimsækja voru eða eru til í alvöru. Byggt er á heimildum en stundum skáldað í eyður til að glæða söguna lífi. Í Stjörnuskífunni bregður einnig fyrir fyrirbærum sem eru ekki til í raun og veru, til dæmis tímavélum, töfradrykkjum og töfraöndum. Það er vegna þess að sagan er í grunninn fantasía, eða ævintýrasaga, með fróðleiksívafi.

Helsti efniviður sögunnar er sóttur til gullaldar íslams. Það er tímabil á miðöldum þegar vísindi og menning blómstruðu í mörgum löndum múslima. Fjallað er um allt sem tengist trúarbrögðum af hlutleysi og einungis til upplýsingar.

Stjörnuskífan er samstarfsverkefni hugbúnaðagerðarinnar Gebo Kano ehf. og rithöfundarins Emils Hjörvars Petersen. Verkefnið hlaut styrk úr Þróunarsjóði námsgagna árin 2015 og 2016.

Góða skemmtun!

Disclaimer:
AppAdvice does not own this application and only provides images and links contained in the iTunes Search API, to help our users find the best apps to download. If you are the developer of this app and would like your information removed, please send a request to takedown@appadvice.com and your information will be removed.